F. Úrgangur og sóun |
Lýsing
F.2 Bann við urðun lífræns úrgangs. Aðgerðin felur í sér að bannað verður að urða lífrænan og lífbrjótanlegan úrgang hér á landi.Staða
Aðgerðin er í framkvæmd.
Aðgerðin er tvískipt.
Fyrri hluti hennar snýr að banni við að urða lífrænan úrgang hér á landi. Á vorþingi 2021 var samþykkt frumvarp umhverfis– og auðlindaráðherra sem lögfestir að komið skuli upp sérstakri söfnun lífræns úrgangs (lífúrgangs skv. lögunum) og að óheimilt verði að urða úrgang sem safnað hefur verið sérstaklega. Ákvæði laganna taka gildi 1. janúar 2023.[1]
Síðari hluti aðgerðarinnar snýr að banni við urðun alls lífbrjótanlegs úrgangs frá og með árinu 2023. Undirbúningur að nauðsynlegri lagasetningu þess efnis þarf að hefjast eigi síðar en árið 2022.
[1] https://www.althingi.is/altext/151/s/1810.html
Framkvæmd
Bannað verður að urða lífrænan úrgang hér á landi að meginreglu frá og með árinu 2021, samkvæmt lagafrumvarpi sem lagt verður fram á Alþingi 2020-2021. Leiðir þetta af ákvæðum frumvarpsins sem kveða á um að komið skuli upp sérstakri söfnun á lífrænum úrgangi og að óheimilt verði að urða úrgang sem safnað hefur verið sérstaklega.
Ábyrgð
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Árangursmælikvarði
Urðun lífbrjótanlegs heimilisúrgangs.
Mynd 38 Magn lífbrjótanlegs heimilisúrgangs sem fór í urðun á Íslandi árin 2006-2020
Mynd 38 sýnir að magn lífbrjótanlegs úrgangs frá heimilum er töluvert meira en þau markmið sem stefnt er að.
Urðun lífbrjótanlegs rekstrarúrgangs.
Mynd 39 Magn lífbrjótanlegs rekstrarúrgangs sem fór í urðun á Íslandi árin 2006-2020
Magn lífbrjótanlegs rekstrarúrgangs i urðun hefur aukist sl. ár en er þó undir markmiðum eins og sést á Mynd 39.
Áhrif á ríkissjóð
Aðgerðin hefur ekki í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð. Gera má ráð fyrir að aðgerðin dragi úr tekjum af urðunarskatti (sjá aðgerð F.1), enda er henni ætlað að leiða til samdráttar í urðun úrgangs.Áhrif á losun
Áætlað er að með þessari aðgerð muni losun frá úrgangi árið 2030 hafa dregist saman um 104 þúsund tonn af CO2-ígildum miðað við spá um þróun samkvæmt grunnsviðsmynd.