Hoppa yfir valmynd
15. maí 2024 Utanríkisráðuneytið

Utanríkisráðherrar Íslands og Eystrasaltsríkjanna í Georgíu

Margus Tsahkna, utanríkisráðherra Eistlands, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, Baiba Braže, utanríkisráðherra Lettlands, og Gabrielius Landsbergis, utanríkisráðherra Litáens, ásamt Salome Zourabichvili, forseta Georgíu. - myndMFA Lithuania

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra er í Georgíu ásamt utanríkisráðherrum Eistlands, Lettlands og Litáens. Ferð ráðherranna var farin í framhaldi af sameiginlegri yfirlýsingu Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8-ríkjanna) sem gefin var út síðasta föstudag. 

Ráðherrarnir áttu fundi með forseta Georgíu, fulltrúum stjórnvalda, stjórnarandstöðu og frjálsra félagasamtaka. Með ferðinni vilja ráðherrarnir sýna stuðning við Georgíu og íbúa landsins á vegferð þeirra í átt að frekari aðild að vestrænu samstarfi, bæði Evrópusamstarfi sem og á vettvangi Atlandshafsbandalagsins. Landið hlaut stöðu umsóknarríkis um aðild að Evrópusambandinu í desember og hefur lengi unnið að aðild að Atlantshafsbandalaginu.

„Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin hafa stutt dyggilega við vegferð Georgíu í átt að efnahagslegum og lýðræðislegum umbótum, allar götur síðan þjóðin öðlaðist sjálfstæði á ný,“ segir Þórdís Kolbrún. „Við óttumst að nýsamþykkt lög um meint gagnsæi erlendra áhrifa muni hafa neikvæð áhrif á stöðu Georgíu í hinum frjálsa heimi og þá er hún í andstöðu við greinilegan meirihlutavilja georgísku þjóðarinnar líkt og viðbrögð almennings bera með sér. Við þessu vildum við bregðast, en valið er að lokum alltaf í höndum Georgíu.“

Lagasetning um meint gagnsæi erlendra áhrifa, sem samþykkt var í georgíska þinginu í gær, hefur vakið alvarlegar spurningar um hvert landið stefnir. Lögin þykja samin undir sterkum rússneskum áhrifum, en sambærileg lög sem voru samþykkt í Rússlandi á sínum tíma höfðu alvarlegar afleiðingar fyrir fjölmiðla og starf frjálsra félagasamtaka þar í landi.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum