Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Fæðingar- og foreldraorlof

Mál nr. 565/2023-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 565/2023

Fimmtudaginn 29. febrúar 2024

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 23. nóvember 2023, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. nóvember 2023, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 22. ágúst 2022 og var umsóknin samþykkt 25. ágúst 2022. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. nóvember 2023, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hans væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað atvinnutilboði hjá B. Í kjölfar skýringa kæranda til Vinnumálastofnunar var mál hans tekið fyrir að nýju. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 23. nóvember 2023, var fyrri ákvörðun staðfest með þeim rökum að sú ákvörðun hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu, þrátt fyrir ný gögn í málinu.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 23. nóvember 2023. Með bréfi, dags. 29. nóvember 2023, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar vegna kærunnar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 18. desember 2023 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. desember 2023. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi tekur fram að hann hafi farið á fund með ráðgjafa Vinnumálastofnunar þann 5. október 2023 þar sem rætt hafi verið um störf á vegum stofnunarinnar. Kærandi hafi jánkað nokkrum þeirra og ráðgjafinn hafi ætlað að senda ferilskrá hans á þá vinnustaði. Þau hafi einnig verið sammála um að starf hjá B hafi ekki verið hentugt fyrir kæranda af nokkrum ástæðum. Aðallega vegna þess að vinnustaðurinn væri of langt frá heimili kæranda, eða í Mosfellsbæ en hann sé búsettur í Hafnarfirði. Kærandi sé bíllaus og ekki sé bein strætó leið á vinnustaðinn. Það myndi taka of langan tíma að fara með strætó frá Hafnarfirði til Mosfellsbæjar, eða um tvo til tvo og hálfan tíma. Kærandi myndi þurfa að skipta um strætó og bíða eftir öðrum strætó til að komast á vinnustaðinn. Kærandi bendi á reglu Vinnumálastofnunar um að taka megi tillit til heimilisaðstæðna þegar atvinnuleitandi hafni starfi fjarri heimili sínu.

Kærandi vísar einnig til þess að hann hafi fengið boð um atvinnuviðtal hjá B degi fyrir viðtalið. Vegna orðalags í tölvupósti frá fyrirtækinu hafi kærandi látið vita að hann gæti ekki mætt. Kærandi hafi ekki vitað að honum væri skylt að mæta í viðtalið, hann hafi talið það valkvætt að samþykkja atvinnuviðtalið.

Kæranda langi að taka námskeið hjá Mími en vegna þessa máls þurfi hann að eyða allri sinni orku í að finna starf eins fljótt og auðið sé. Kærandi geti ekki greitt húsaleigu án atvinnuleysisbóta og sé ekki með neinar aðrar tekjur.

Að lokum tekur kærandi fram að hann sé með persónulegar og félagslegar ástæður fyrir því að hafa ekki mætt í atvinnuviðtal. Hann hafi fengið slæmar fréttir um sitt persónulega líf rétt fyrir atvinnuviðtalið og því ekki getað mætt vegna andlegrar heilsu. Kærandi óski því eftir skilningi og tillitssemi.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 22. ágúst 2022. Með erindi, dags. 25. ágúst 2022, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Þann 2. nóvember 2023 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað atvinnuviðtali hjá B. Um hafi verið að ræða starf við niðurrif bifreiða og lagerstörf. Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekanda hafi kærandi hafnað umræddu atvinnuviðtali þar sem hann væri bíllaus og það myndi taka hann eina klukkustund að fara með strætó.

Með erindi, dags. 13. nóvember 2023, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á atvinnuviðtali hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að ef atvinnuleitandi hefði hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Vinnumálastofnun hafi þann 14. nóvember 2023 borist skýringar frá kæranda þar sem fram komi að hann hafi tjáð atvinnurekanda að hann væri bíllaus og starfið væri of langt frá heimili hans. Þá hafi kærandi jafnframt sagst hafa talað við ráðgjafa hjá Vinnumálastofnun sem hafi jafnframt sagt að starfið væri of langt frá heimili hans.

Með erindi, dags. 20. nóvember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hans væru stöðvaðar í tvo mánuði. Sú ákvörðun hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þann 21. nóvember 2023 hafi kærandi sent frekari skýringar og beiðni um endurupptöku málsins. Með erindi, dags. 23. nóvember 2023, hafi kæranda verið tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest, enda hefðu ný gögn í máli kæranda ekki getað leitt til annarrar niðurstöðu.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir leiti sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Gert sé ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði að hafa til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslu atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit.

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi eða atvinnuviðtali. Ákvæðið sé svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veitir Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda. Öllum atvinnuleitendum sé þannig vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem séu í boði og um höfnun á atvinnuviðtölum.

Fyrir liggi að kærandi hafi fengið boð um atvinnuviðtal hjá B. Kærandi hafi sagst ekki geta tekið því viðtali þar sem starfstöð atvinnurekanda væri of langt frá heimili hans. Hann væri bíllaus og almenningssamgöngur hentuðu honum ekki. Í þeim tilfellum sem atvinnuleitandi hafni atvinnuviðtali komi til álita hvort skýringar hans vegna höfnunar á umræddu starfi séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg en í 4. mgr. segi orðrétt:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitanda vegna höfnunar á atvinnuviðtali með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara og hafa til þess vilja og getu. Gert sé ráð fyrir að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum. Við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur þeirra. Öllum atvinnuleitendum sé þannig vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem séu í boði og um höfnun á atvinnuviðtölum. 

Þær skýringar sem kærandi greini frá í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála hafi legið fyrir við ákvörðun um viðurlög á grundvelli 57. gr. Þær skýringar snúi að því að starfstöð atvinnurekanda sé of langt frá heimili hans þar sem hann sé bíllaus og ferð með almenningssamgöngum taki of langan tíma. Kærandi hafi verið með skráð heimilisfang við C Hafnarfirði en starfstöð B hafi verið við D Mosfellsbæ. Strætó sé með skipulagðar ferðir þar á milli en áætlaður ferðatími samkvæmt heimasíðu þeirra sé um 45 mínútur, án göngutíma sem sé áætlaður um 27 mínútur.

Kærandi hafi í skýringum sínum jafnframt borið því við að í samtali við starfsmann Vinnumálastofnunar, viku fyrir boð í atvinnuviðtalið, hafi hann komið á framfæri að starf hjá B myndi ekki henta honum. Í samskiptaskrá Vinnumálastofnunar sé skráð að kærandi hafi mætt í viðtal á þjónustuskrifstofu þann 5. október 2023. Í tölvupósti sem ráðgjafi hafi sent honum sama dag, með titlinum Activity report, sé ekki skráð að rætt hafi verið um starf hjá B.

Skýringar kæranda séu ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á atvinnuviðtali samkvæmt 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta biðtíma á grundvelli ákvæðisins.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnuviðtali geti ekki talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Í athugasemdum við 57. gr. í frumvarpi því er varð að lögum nr. 54/2006 kemur fram:

„Enn fremur þykir mikilvægt að það að hafna því að fara í atvinnuviðtal eða sinna ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar hafi sömu áhrif og sú ákvörðun að taka ekki starfi sem býðst. Ástæðan er einkum sú að atvinnuviðtal er venjulega meginforsenda þess að hinum tryggða verði boðið starf og þykir það mega leggja þá ákvörðun að jöfnu við því að hafna starfi. Verður að teljast óeðlilegt að hinn tryggði geti neitað því að fara í atvinnuviðtal án viðbragða frá kerfinu en þeir sem fóru í viðtalið og var boðið starfið þurfi að þola biðtíma eftir atvinnuleysisbótum taki þeir ekki starfinu.“

Samkvæmt gögnum málsins var kæranda þann 31. október 2023 miðlað í starf hjá B. Fyrirtækið tilkynnti Vinnumálastofnun þann 2. nóvember 2023 að kærandi hefði hafnað starfinu þar sem hann væri bíllaus og það tæki hann meira en einn klukkutíma að komast til Mosfellsbæjar með strætó. Því gæti hann ekki unnið hjá fyrirtækinu.

Kærandi hefur meðal annars vísað til þess að hann hafi ekki haft vitneskju um að honum væri skylt að mæta í atvinnuviðtal.

Þann 22. ágúst 2022 var kæranda tilkynnt að Vinnumálastofnun hefði móttekið umsókn hans um atvinnuleysisbætur. Kæranda var meðal annars greint frá því að ítarlegar upplýsingar um réttindi og skyldur væri að finna á heimasíðu Vinnumálastofnunar undir. Þar er meðal annars að finna upplýsingar um viðurlög við því að hafna starfi eða atvinnuviðtali. Með hliðsjón af framangreindu telur úrskurðarnefndin að kærandi hefði mátt vita að skylt væri að mæta í boðuð atvinnuviðtöl, eða að minnsta kosti haft tilefni til þess að afla sér upplýsinga um hvort slík skylda væri fyrir hendi.

Þar sem kærandi hafnaði atvinnuviðtali hjá B kom réttilega til viðurlaga á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Með vísan til þess er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 20. nóvember 2023, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum