| 08 Heilbrigðisráðuneyti
Útgjöld og fjármögnun
heilbrigðisráðuneytis breytist milli ára sem hér segir:
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá
fjárl. % |
Breyting frá
reikn. % |
Rekstrargjöld |
69.861,1 |
68.604,9 |
67.890,3 |
-1 |
-3 |
Neyslu- og
rekstrartilfærslur |
23.345,2 |
26.677,7 |
24.435,9 |
-8 |
5 |
Stofnkostnaður
og viðhald |
2.061,1 |
1.614,6 |
1.012,0 |
-37 |
-51 |
Samtals |
95.267,4 |
96.897,2 |
93.338,2 |
-4 |
-2 |
Greitt úr
ríkissjóði |
- |
96.455,1 |
92.881,1 |
-4 |
- |
Innheimt af
ríkistekjum |
- |
442,1 |
457,1 |
3 |
- |
Viðskiptahreyfingar |
- |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Samtals |
- |
96.897,2 |
93.338,2 |
-4 |
- |
Heildargjöld
heilbrigðisráðuneytis árið 2010 eru áætluð um 96.648 m.kr. á rekstrargrunni. Frá
dragast sértekjur að fjárhæð 5.310 m.kr., en þær nema 5,5% af heildargjöldum
ráðuneytisins. Gjöld umfram tekjur eru 93.338 m.kr. og af þeirri fjárhæð eru 92.881
m.kr. fjármagnaðar með beinu framlagi úr ríkissjóði og 457 m.kr. innheimtar af
ríkistekjum.
Vakin er athygli á að í
inngangi þessa kafla um gjöld A-hluta, þ.e. kafla 3.2,, er
umfjöllun um fyrirhugaðan samdrátt í ríkisútgjöldum á næsta ári þar sem farið
er heildstætt yfir þau áform fyrir öll ráðuneytin og málaflokka þeirra.
Einnig er vakin athygli á
því að reynt hefur verið að aðlaga framsetningu á útgjöldum ráðuneyta í
frumvarpinu vegna flutnings á verkefnum á milli þeirra á næsta ári. Þannig hafa
útgjaldatölur reiknings liðins árs og gildandi fjárlaga verið lækkaðar sem nemur
veltu verkefna sem flytjast frá heilbrigðisráðuneyti, en hækkaðar á sama hátt hjá
ráðuneytum sem taka við verkefnunum. Útgjöld heilbrigðisráðuneytis lækka um
19.375 m.kr. á árinu 2010 frá því sem annars hefði orðið vegna verkefna sem flutt
eru til félags- og tryggingamálaráðuneytis, en 18.943,5 m.kr. eru vegna reksturs
öldrunarheimila og 431,5 m.kr. vegna sjúkratrygginga.
Í frumvarpinu dragast
útgjöld heilbrigðisráðuneytisins saman um 6.702 m.kr. á verðlagi fjárlaga 2009.
Útgjaldabreytingunum milli ára má skipta í þrjá þætti. Í fyrsta lagi verða
gerðar ráðstafanir til að lækka útgjöld ráðuneytisins um 7.745 m.kr. í samræmi
við markmið sem ríkisstjórnin hefur sett í áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum
á tímabilinu 20092013. Áhrif af aðgerðum sem gripið var til á seinni hluta
þessa árs eru meðtalin í þeirri lækkun á ársgrundvelli en þau eru áætluð um
880 m.kr. Í öðru lagi er um að ræða útgjaldaskuldbindingar sem falla til á árinu
2010 og nema 1.356 m.kr. Í þriðja lagi falla niður tímabundin framlög til ýmissa
verkefna sem nema 313 m.kr. Að viðbættum verðlagshækkunum ársins 2010, sem eru
áætlaðar 3.470 m.kr. lækkar útgjaldarammi heilbrigðisráðuneytisins um 3.231 m.kr.
Rekstrargjöld
ráðuneytisins að frádregnum sértekjum eru áætluð 67.890 m.kr. á árinu 2010.
Rekstrarfjárveitingar stofnana, framlög á grundvelli þjónustusamninga og styrkir til
ýmissa rekstrarverkefna lækka alls um 3.757 m.kr. vegna áforma um hagræðingu í
rekstrarkostnaði ríkissjóðs. Ríkisstjórnin setti markmið um 10% samdrátt í
rekstrarveltu stjórnsýslu- og eftirlitsstofnana, 7% hjá menntastofnunum og 5% hjá
velferðarstofnunum. Vissir liðir sem eru ekki eiginlegur rekstur eru þó frátaldir.
Lækkunin hjá heilbrigðisráðuneytinu nemur 6,9% að raungildi. Þótt markmiðin hafi
verið sett miðað við veltu eru þau útfærð eftir forgangsröð og áherslum
ráðuneytisins sem getur falið í sér mismikla skerðingu á fjárveitingum eins og
fram kemur í umfjöllun um einstakar stofnanir og verkefni. Gert er ráð fyrir auknum
útgjaldaskuldbindingum í rekstri sem nema samtals 994 m.kr. Þar munar mest um 751 m.kr.
framlag til að mæta hækkun tryggingagjalds úr 5,33% í 7%, 160 m.kr. framlag vegna
hækkunar á álagningarprósentu fasteignagjalda úr 0,88% í 1,32% og 84 m.kr. framlag
til að mæta hluta kostnaðar við síðasta áfanga flutnings á umsjón með fasteignum
ráðuneytisins til Fasteigna ríkissjóðs. Á móti eru felldar niður 60 m.kr., þ.a.
eru fasteignagjöld að fjárhæð 32 m.kr. vegna flutnings á fasteignum ráðuneytisins
til Fasteigna ríkisins og 28 m.kr. sem veitt var til tímabundinna verkefna.
Verðlagshækkun fjárveitinga til rekstrar er um 1.774 m.kr., en fjárheimildir
frumvarpsins miðast við að engar hækkanir verði á launum starfsmanna umfram þá
hækkun sem verður hjá þeim lægst launuðu 1. júlí 2010 samkvæmt kjarasamningum sem
gerðir voru fyrr á árinu 2009.
Neyslu- og
rekstrartilfærslur lækka um 2.242 m.kr. og verða 24.436 m.kr. en eru 26.677,7 m.kr.
í fjárlögum ársins 2009, en upphæðir eru án S-merktra lyfja sem tilheyra rekstri.
Sett var markmið af hálfu ríkisstjórnar um 10% lækkun almennra tilfærsluliða við
undirbúning frumvarpsins og er gert ráð fyrir að þau útgjöld ráðuneytisins lækki
um 2.708 m.kr. vegna þess. Jafnframt er gerð krafa um að áhrif hagræðingaraðgerða
sem gripið var til á seinni hluta þessa árs skili 880 m.kr. í lækkuðum útgjöldum
sjúkratrygginga á árinu 2010 og fjárheimildir því lækkaðar til viðbótar sem
þeirri fjárhæð nemur. Tilfærsluliðir lækka um 193 m.kr. vegna flutnings verkefna
innan ráðuneytisins og þá lækka fjárheimildir sjúkratrygginga um 423 m.kr. vegna
flutnings verkefna frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis
í tengslum við breytta verkaskiptingu innan Stjórnarráðsins. Á hinn bóginn er gert
ráð fyrir 266 m.kr. aukningu í útgjaldaskuldbindingum og verðlagshækkun
fjárveitinga sem telst til tilfærslna nemur 1.697 m.kr.
Viðhalds- og
stofnkostnaður er áætlaður 1.012 m.kr. og er það 603 m.kr. lækkun frá
fjárlögum 2009. Framlag lækkar um 400 m.kr. til að mæta áformum um samdrátt í
ríkisútgjöldum, en því var ætlað að mæta kostnaði við undirbúning að byggingu
nýs Landspítala. Þá eru felldar niður fjárheimildir til tímabundinna
stofnkostnaðarverkefna og er þar helst að nefna 155 m.kr. framlag sem veitt var til að
ljúka framkvæmdum við 1. hæð viðbyggingar og starfsaðstöðu fyrir sjúkraþjálfun
á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, 58 m.kr. framlag til Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
sem ætlað var til viðhaldsverkefna sem nú er lokið og 47 m.kr. sem varið var til
framkvæmda á Siglufirði. Þá hækkar tækjakaupaliður Landspítala tímabundið um 60
m.kr. til að mæta kostnaði við kaup á nýju segulómtæki sem keypt var 2009.
Vikið er nánar að
áformum um sparnað og forgangsröð útgjalda og helstu útgjaldabreytingar í
greinargerð um viðkomandi fjárlagaliði hér á eftir.
Skipting áætlaðra
útgjalda ráðuneytisins árið 2010 eftir helstu málefnaflokkum er sýnd í myndinni
hér á eftir.

Skuldbindandi samningar
Heilbrigðisráðuneytið
hefur á síðustu árum gert samninga við samtök, einkaaðila og sveitarfélög um
verkefni sem áætlað er að nemi samtals um 6.300 m.kr. á yfirstandandi ári.
Samningarnir eru tilgreindir í töflunni hér á eftir. Fjárhæðir í töflunni, að
undanskildu árinu 2009, eru á áætluðu verðlagi ársins 2010 og miðast við
hámarksskuldbindingu, en geta orðið lægri ef t.d. forsendur, sem kveðið er á um í
tilteknum samningum, taka breytingum. Samtals nema samningarnir um 9% af heildargjöldum
ráðuneytisins á árinu 2010. Vegna flutnings verkefna frá heilbrigðisráðuneyti til
félags- og tryggingamálaráðuneytis í tengslum við breytta verkaskiptingu innan
Stjórnarráðsins eru samningar við öldrunarstofnanir ekki hafðir með í töflunni.
Öldrunarstofnanir sem heilbrigðisráðuneytið er með gildandi samninga við eru
Akureyrarbær og Sveitarfélagið Hornafjörður um rekstur hjúkrunarþjónustu,
Hrafnista um rekstur Vífilsstaða í Garðabæ og Víðiness og hvíldarrýma með
endurhæfingu í Reykjavík og Öldungur um rekstur hjúkrunarþjónustu.
Rekstrargrunnur, m.kr. |
Teg. |
2009 |
2010 |
2011 |
2012 |
2013 |
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra |
A |
175,5 |
171,6 |
171,6 |
171,6 |
171,6 |
Samningur um sjúkraþjálfun fyrir fatlaða |
A |
47,0 |
55,5 |
55,5 |
55,5 |
55,5 |
Samtök áhugamanna um áfengisvandamálið |
A |
656,6 |
646,1 |
646,1 |
646,1 |
646,1 |
Leitarstöð Krabbameinsfélags Ísl., forvarnir |
A |
318,5 |
300,9 |
300,9 |
300,9 |
300,9 |
Hjartavernd, hóprannsóknir |
A |
67,6 |
65,1 |
65,1 |
65,1 |
65,1 |
Sjúkrahótel |
A |
87,7 |
91,8 |
91,8 |
91,8 |
91,8 |
Reykjalundur |
A |
1.352,9 |
1.300,5 |
1.300,5 |
1.300,5 |
1.300,5 |
Hlein |
A |
108,4 |
107,4 |
107,4 |
107,4 |
107,4 |
Heilsustofnun NLFÍ Hverag., endurhæfing |
A |
555,1 |
547,8 |
547,8 |
547,8 |
547,8 |
Miðstöð heimahjúkrunar á höfuðborgarsv. |
A |
907,1 |
908,2 |
908,2 |
908,2 |
908,2 |
Læknavaktin ehf., vaktþjónusta |
A |
284,8 |
250,7 |
250,7 |
250,7 |
250,7 |
Sjúkraflutningar á Akureyri |
A |
70,0 |
65,3 |
65,3 |
65,3 |
65,3 |
Sjúkraflutningar á Suðurnesjum |
A |
70,0 |
65,3 |
65,3 |
65,3 |
65,3 |
Sjúkraflutningar á höfuðborgarsvæðinu |
A |
390,7 |
364,5 |
364,5 |
364,5 |
364,5 |
RKÍ, öflun bifreiða/búnaðar til sjúkraflutn. |
A |
136,6 |
134,1 |
134,1 |
134,1 |
134,1 |
Mýflug - sjúkraflug á Norðursvæði |
A |
97,5 |
90,1 |
90,1 |
90,1 |
90,1 |
Flugfélag Vestmannaeyja - sjúkrafl. til Vestm. |
A |
33,9 |
31,6 |
31,6 |
31,6 |
31,6 |
Akureyrarbær, rekstur heilsugæslu |
A |
478,8 |
469,5 |
469,5 |
469,5 |
469,5 |
Heilsugæslustöðin í Salahverfi Kópavogi |
A |
271,4 |
274,2 |
274,2 |
274,2 |
274,2 |
Heilbrigðisst. Suð-Austurl., rekstur heilbrþj. |
A |
190,7 |
181,9 |
181,9 |
181,9 |
181,9 |
Samtals |
|
6.300,8 |
6.122,1 |
6.122,1 |
6.122,1 |
6.122,1 |
Skuldbindandi samningum
ráðuneyta er skipað í þrjá flokka í frumvarpinu: A, B og C. Samningar sem
heilbrigðisráðuneytið stendur að ásamt fjármálaráðuneytinu skv. heimild í 30.
gr. fjárreiðulaga eru merktir með bókstafnum A í töflunni og er kostnaður vegna
þeirra áætlaður 6.300 m.kr. á yfirstandandi ári. Gera má ráð fyrir að þeir
samningar sem renna út á tímabilinu verði flestir endurnýjaðir þegar að því
kemur, þannig að til jafnaðar verði nálægt 6.120 m.kr. bundnar árlega vegna
framangreindra verkefna.
Unnið er að endurnýjun
nokkurra eldri samninga, við Akureyrarbæ um heilsugæslu og sjúkraflutninga,
Sveitarfélagið Hornafjörð um heilbrigðisþjónustu, Krabbameinsfélagið um rekstur
leitarstöðvar og samning um sjúkraþjálfun fyrir fatlaða.
Hér á eftir er fjallað
um helstu breytingar í fjármálum málaflokka og stofnana sem heyra undir
heilbrigðisráðuneytið.
Ráðuneyti
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 101 Heilbrigðisráðuneyti,
aðalskrifstofa; 199 Ráðstöfunarfé.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting
frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Heilbrigðisráðuneyti, aðalskrifstofa |
529,6 |
546,8 |
592,7 |
8,4 |
11,9 |
Ráðstöfunarfé |
0,0 |
8,0 |
8,0 |
- |
- |
Samtals |
529,6 |
554,8 |
600,7 |
8,3 |
13,4 |
Heildarfjárveiting til
málefnaflokksins hækkar um 30,2 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar
almennar verðlagsbreytingar og hækkun tryggingagjalds af launaveltu.
101
Heilbrigðisráðuneytið, aðalskrifstofa. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
nemi um 592,7 m.kr. og að þau aukist um 30,2 m.kr. á næsta ári umfram launa- og
verðlagshækkanir og hækkun tryggingagjalds. Í fyrsta lagi eru 35,3 m.kr. færðar af
lið 399 Heilbrigðismál, ýmis starfsemi til að efla hlutverk ráðuneytisins í
eftirliti með styrkveitingum og skuldbindandi samningum á vegum ráðuneytisins. Í
annan stað eru 13,4 m.kr. færðar af lið 399 Heilbrigðismál, ýmis starfsemi
til að fjármagna laun sérfræðinga sem starfa hjá ráðuneytinu við uppbyggingu á
sjúkraskrárkerfi og heilbrigðisupplýsingum. Í þriðja lagi eru 11 m.kr. færðar af
lið 379 Sjúkrahús, óskipt til að fjármagna laun starfsmanns sem hefur unnið
fyrir ráðuneytið en launin bókuð á óskiptan lið. Í fjórða lagi eru 7,8 m.kr.
færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til að fjármagna laun
við stefnumótun og verkefni á sviði geðheilbrigðismála. Liðurinn lækkar samtals
um 37,3 m.kr. í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum.
Þá hækkar liðurinn um 15,7 m.kr. vegna launa- og verðlagsbreytinga og hækkun
tryggingagjalds.
Tryggingamál
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 202 Sjúkratryggingastofnun; 206
Sjúkratryggingar; 208 Slysatryggingar og 209 Sjúklingatrygging.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Sjúkratryggingar Íslands |
403,3 |
510,3 |
469,5 |
-8,0 |
16,4 |
Sjúkratryggingar |
22.157,7 |
28.286,2 |
26.561,0 |
-6,1 |
19,9 |
Slysatryggingar |
641,8 |
577,9 |
636,0 |
10,1 |
-0,9 |
Sjúklingatrygging |
103,0 |
120,1 |
120,1 |
0,0 |
16,6 |
Samtals |
23.305,8 |
29.494,5 |
27.786,6 |
-5,8 |
19,2 |
Í frumvarpinu er gert
ráð fyrir að draga úr útgjöldum til tryggingamála sem nemur 3.957,6 m.kr. frá
fjárlögum 2009 þegar frá eru taldar launa- og verðlagsbreytingar og hækkun
tryggingagjalds. Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar um samdrátt er í
frumvarpinu gert ráð fyrir að draga úr útgjöldum til málaflokksins sem nemur 3.608
m.kr. á verðlagi gildandi fjárlaga. Markmið ríkisstjórnarinnar er að fjárheimildir
til tryggingamála lækki um 10% vegna aðhaldsaðgerða á árinu 2010 og lækka
útgjöld um 2.728 m.kr. vegna þess. Jafnframt er gerð krafa um að áhrif
aðhaldsaðgerða sem gripið var til á seinni hluta þessa árs skili 880 m.kr. í
lækkuðum útgjöldum sjúkratrygginga á árinu 2010 og fjárheimildir því lækkaðar
til viðbótar sem þeirri fjárhæð nemur. Samdrátturinn felast einkum í lækkun
framlags til lyfja, lækniskostnaðar og þjálfunar samtals 3.557 m.kr. Fjárheimildir
lækka um 168,9 m.kr. vegna flutnings verkefna innan ráðuneytisins og um 423 m.kr. vegna
flutnings verkefna frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og
tryggingamálaráðuneytis. Á hinn bóginn er gert ráð fyrir 242,3 m.kr. aukningu í
útgjaldaskuldbindingum. Hækkun fjárveitinga vegna launa- og verðlagsbreytinga og
hækkun tryggingagjalds nemur 2.249,7 m.kr.
202
Sjúkratryggingar Íslands. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
Sjúkratrygginga Íslands verði 469,5 m.kr. á næsta ári. Útgjöldin lækka um 51
m.kr. frá fjárlögum 2009 á grundvelli ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um samdrátt
í útgjöldum. Aðrar breytingar á fjárheimildum stofnunarinnar skýrast af áhrifum
kjarasamninga þessa árs, verðlagshækkunum og hækkun tryggingagjalds sem samtals nema
10,2 m.kr.
206
Sjúkratryggingar. Heildarútgjöld sjúkratrygginga eru áætluð 26.561 m.kr. á
næsta ári og jafngildir það 3.916,5 m.kr. lækkun frá fjárlögum 2009 að
frátöldum launa- og verðlagsbreytingum. Í fyrsta lagi er áformað að lækka framlag
til lækniskostnaðar með aðhaldsaðgerðum um samtals 1.307 m.kr. á árinu 2010.
Þegar hefur verið gripið til aðgerða á þessu ári sem skila eiga 100 m.kr. í
lækkun kostnaðar á seinni hluta þessa árs og 200 m.kr. á næsta ári. Til viðbótar
er markmiðið að ná niður lækniskostnaði um 1.107 m.kr. með aðgerðum sem gripið
verður til á næsta ári. Þá lækkar framlagið um 166 m.kr. vegna hærri komugjalda
sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009, en sparnaðinum sem þeirri breytingu er
ætlað að ná fram er dreift á einstaka fjárlagaliði á árinu 2010. Á móti hækkar
framlag um 55 m.kr. eða um 1% til að mæta fjölgun bótaþega og 146 m.kr. vegna
efniskaupa. Í öðru lagi er lagt til að lækka útgjöld til lyfjakaupa um samtals
1.730 m.kr. Þegar hefur verið gripið til aðgerða sem skila eiga 230 m.kr. í lækkun
lyfjaútgjalda á seinni hluta þessa árs og 460 m.kr. á næsta ári. Til viðbótar
þarf að ná niður lyfjakostnaði um 1.270 m.kr. með aðgerðum á árinu 2010, en
haldið verður áfram á sömu braut og mörkuð var á árinu með því að fjölga
þeim lyfaflokkum þar sem greiðsluþátttaka ríkisins er takmörkuð við ódýrasta
lyf með sambærilega verkun og má nefna að 1. október 2009 mun taka gildi reglugerð
þar sem greiðsluþátttöku í blóðþrýstingslyfjum verður breytt þannig að hún
miðist við ódýrasta lyf með sambærilega verkun.. Í þessu samhengi má einnig geta
að í samræmi við áform um lækkun lyfjakostnaðar í fjárlögum 2009 má ætla að
þær breytingar sem heilbrigðisráðherra ákvað með setningu reglugerðar 1. mars sl.
skili um 1.100 m.kr. í lægri lyfjaútgjöldum á árinu ef horft er framhjá
gengisþróun íslensku krónunnar. Þá hefur náðst umtalsverður sparnaður með því
bæta Finnlandi í hóp viðmiðunarlanda við ákvörðun almenns lyfjaverðs. Þá er
einnig áformað að endurskoða svokölluð þök og gólf" í
greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í lyfjakostnaði. Í þriðja lagi er framlag til
S-merktra lyfja hækkað um 32 m.kr., en það jafngildir 1% magnaukningu frá gildandi
fjárlögum. Í fjórða lagi lækkar framlag til hjálpartækja um samtals 163 m.kr.
vegna flutnings á verkefnum til félags- og tryggingamálaráðuneytis, þ.a. eru 120,0
m.kr. vegna styrkja til bifreiðakaupa hreyfihamlaðra og 43,0 m.kr. vegna flutnings
atvinnutengdrar endurhæfingar. Aðrar breytingar á liðnum skýrast af flutningi
framlags á milli liða innan ramma ráðuneytis. Í fimmta lagi lækkar framlag til
þjálfunar um samtals 520 m.kr. á árinu 2010. Þegar hefur verið gripið til aðgerða
á þessu ári sem skila eiga 110 m.kr. í lækkun kostnaðar á seinni hluta þessa árs
og 330 m.kr. á næsta ári. Til viðbótar er markmiðið að ná niður kostnaði við
sjúkraþjálfun um 190 m.kr. með aðgerðum á árinu 2010. Með reglugerð sem tekur
gildi 1. október 2009 er greiðsluþátttaka almennra notenda í kostnaði við
sjúkraþjálfun hækkuð. Því til viðbótar hafa kröfur um greiðsluþátttöku
ríkisins vegna framhaldsmeðferðar hjá sjúkraþjálfara verið hertar. Þá eru
fluttar 260 m.kr. vegna starfsendurhæfingar til félags- og tryggingamálaráðuneytis.
Ekki er gert ráð fyrir öðrum breytingum á framlagi sjúkratrygginga að því
undanskildu að lagt er til að flytja 6 m.kr. frá Landspítala á lið tannlækninga til
að hækka greiðsluþátttöku ríkisins í kostnaði við tannréttingar barna með
skarð í góm og vör, en spítalinn hefur ekki sinnt þessu verkefni eins og til var
ætlast.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Lækniskostnaður |
5.183,2 |
5.485,0 |
4.290,0 |
-21,8 |
-17,2 |
Lyf |
9.287,3 |
10.259,4 |
9.548,0 |
-6,9 |
2,8 |
Lyf með S-merkingu |
0,0 |
3.156,6 |
3.752,0 |
18,9 |
- |
Hjálpartæki |
2.324,5 |
3.149,1 |
3.279,0 |
4,1 |
41,1 |
Hjúkrun í heimahúsum |
129,3 |
133,0 |
136,0 |
2,3 |
5,2 |
Þjálfun |
1.871,7 |
2.340,1 |
1.591,0 |
-32,0 |
-15,0 |
Tannlækningar |
1.380,9 |
1.666,4 |
1.672,0 |
0,3 |
21,1 |
Sjúkraflutningar og ferðir innan lands |
334,9 |
335,2 |
352,0 |
5,0 |
5,1 |
Brýn meðferð erlendis |
1.176,9 |
1.145,4 |
1.289,0 |
12,5 |
9,5 |
Sjúkrakostn. vegna veikinda og slysa erlendis |
120,8 |
210,0 |
243,0 |
15,7 |
101,2 |
Sjúkradagpeningar |
202,7 |
243,0 |
243,0 |
0,0 |
19,9 |
Annað |
145,5 |
163,0 |
166,0 |
1,8 |
14,1 |
Samtals |
22.157,7 |
28.286,2 |
26.561,0 |
-6,1 |
19,9 |
208 Slysatryggingar.
Gert er ráð fyrir að útgjöld til slysatrygginga verði 636,0 m.kr. á árinu 2010.
Bætur vegna læknis- og sjúkrakostnaðar og bætur til framfærslu hækka í samræmi
við ákvörðun um hækkun bóta almannatrygginga í lögum nr.173/2008 um ráðstafanir
í ríkisfjármálum um alls 48,2 m.kr. Framlag vegna kaups og aflahlutar sjómanna
hækkar 10 m.kr. á grundvelli 36 gr. laga um almanntryggingar.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Bætur vegna læknis- og sjúkrakostnaðar |
170,5 |
137,9 |
151,0 |
9,5 |
-11,4 |
Bætur til framfærslu |
347,7 |
324,0 |
359,0 |
10,8 |
3,2 |
Kaup og aflahlutur sjómanna |
42,2 |
50,0 |
60,0 |
20,0 |
42,2 |
Stjórnunarkostnaður |
81,4 |
66,0 |
66,0 |
0,0 |
-18,9 |
Samtals |
641,8 |
577,9 |
636,0 |
10,1 |
-0,9 |
Sjúkrahús og
sérstæð sjúkrahúsaþjónusta
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 358 Sjúkrahúsið á Akureyri; 373
Landspítali; 379 Sjúkrahús, óskipt; 383 Sjúkrahótel; 384 Rjóður, hvíldarheimili
fyrir börn og 388 Samtök áhugamanna um áfengisvandamálið.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Bygging hátæknisjúkrahúss á lóð
Landspítalans |
246,9 |
400,0 |
0,0 |
-100,0 |
-100,0 |
Landspítali |
37.921,0 |
33.079,9 |
32.661,0 |
-1,3 |
-13,9 |
Rjóður, hvíldarheimili fyrir börn |
126,1 |
120,9 |
127,7 |
5,6 |
1,3 |
Samtök áhugamanna um áfengisvandamálið |
661,0 |
656,6 |
646,1 |
-1,6 |
-2,3 |
Sjúkrahótel |
81,9 |
87,7 |
91,8 |
4,7 |
12,1 |
Sjúkrahús, óskipt |
28,0 |
644,3 |
136,5 |
-78,8 |
387,5 |
Sjúkrahúsið á Akureyri |
4.326,8 |
4.128,8 |
4.086,0 |
-1,0 |
-5,6 |
Samtals |
43.391,7 |
39.118,2 |
37.749,1 |
-3,5 |
-13,0 |
Heildarfjárveiting til
málefnaflokksins nemur 37.749,1 m.kr. og lækkar um 2.485,7 m.kr. frá gildandi
fjárlögum þegar frá eru taldar almennar verðlagsbreytingar og hækkun tryggingagjalds
af launaveltu. Í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar um samdrátt er í frumvarpinu
gert ráð fyrir að draga úr útgjöldum til málaflokksins sem nemur 2.653,7 m.kr. á
verðlagi gildandi fjárlaga. Þyngst vegur lækkun á rekstrarframlagi til Landspítala
um 1.965,5 m.kr., þá er fellt niður 400 m.kr. stofnkostnaðarframlag sem nýta átti
til að undirbúa byggingu nýs Landspítala og rekstrarframlag til Sjúkrahússins á
Akureyri er lækkað 206,3 m.kr. Helstu aðgerðir til að ná fram lækkun útgjalda
byggjast á skýrari verkaskiptingu heilbrigðisstofnana. Einnig verður haldið áfram
við endurskoðun á vinnufyrirkomulagi, vaktkerfum og aukagreiðslum, með það að
markmiði að lækka útgjöld. Þá skal einnig ná fram lækkun í lyfjaútgjöldum
stofnana með innleiðingu lyfjalista og markvissari notkun lyfja. Þá mun ráðuneytið
beita sér fyrir samstarfi heilbrigðisstofnana með það að markmiði að ná fram
hagræðingu í sameiginlegum innkaupum, m.a. á lyfjum og öðrum rekstrarvörum. Að
lokum er reiknað með að þau skref sem stigin hafa verið í átt að sameiningu
rannsókna-, myndgreininga- og lyfjagagnagrunna skili ákveðinni hagræðingu.
358 Sjúkrahúsið á
Akureyri. Samkvæmt frumvarpinu verða rekstargjöld sjúkrahússins 4.086 m.kr.
og dragast saman um 149,7 m.kr. á næsta ári að frátöldum verðlagsbreytingum og
hækkun tryggingagjalds af launaveltu. Lækkunin skýrist af áformum ríkisstjórnar um
samdrátt í útgjöldum og nemur lækkunin 206,3 m.kr. Á móti hækkar framlag til
sjúkrahússins. Í fyrsta lagi eru 62,7 m.kr. fluttar aftur til sjúkrahússins af lið 379
Sjúkrahús, óskipt., en við gerð fjárlaga fyrir árið 2009 var fjárheimildin
flutt þangað til endurráðstöfunar. Þá er 8,3 m.kr. framlag. til að mæta hækkun
álagningaprósentu fasteignagjalda úr 0,88% í 1,32%. Auk þess er endurráðstafað til
sjúkrahússins 20 m.kr. tímabundnu framlagi til að mæta kostnaði við rekstrarleigu
segulómtækis sem ella hefði verið fellt niður. Aðrar breytingar á fjárheimildum er
nettó aukning um 92,5 m.kr. sem skýrist einkum af verðlagsleiðréttingum, hækkun
tryggingagjalds og lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í
fjárlögum ársins 2009, en sparnaðinum sem þeirri breytingu er ætlað að ná fram er
dreift á einstaka stofnanir á árinu 2010.
373 Landspítali. Gert
er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um 32.661 m.kr. á næsta ári og jafngildir það
um 1.153,6 m.kr. lækkun frá fjárlögum þessa árs að frátöldum verðlagsbreytingum
og hækkun tryggingagjalds af launaveltu. Lækkunin skýrist í fyrsta lagi af 1.965,5
m.kr. lækkun framlags í samræmi við áform ríkisstjórnar um samdrátt í
útgjöldum. Í öðru lagi eru 544,3 m.kr. fluttar aftur til spítalans af lið 379
Sjúkrahús, óskipt, en við gerð fjárlaga fyrir árið 2009 var fjárheimildin
flutt þangað til endurráðstöfunar. Í þriðja lagi hækkar framlag um 128,9 m.kr.
til að mæta hækkun álagningahlutfalls fasteignagjalda. Í fjórða lagi eru fluttar
229,7 m.kr. af lið 386 Vistun ósakhæfra afbrotamanna, en ráðuneytið fól
spítalanum að taka formlega við rekstri réttargeðdeildarinnar að Sogni frá 1.
apríl 2009. Í fimmta lagi er tímabundin hækkun framlags um 60 m.kr. til að mæta
kostnaði við kaup á nýju tölvusneiðmyndatæki sem keypt var árinu 2009. Þá er
lagt til að flytja 24,9 m.kr. framlag frá Landspítala yfir til félags- og
tryggingamálaráðuneytis með vísan til samkomulags frá í febrúar 2007 um flutning
verkefna á sviði þjónustu við geðfatlað fólk. Aðrar breytingar á fjárheimildum
er nettó hækkun um 777,5 m.kr. sem skýrist einkum af verðlagsbreytingum, hækkun
tryggingagjalds og lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í
fjárlögum ársins 2009.
379 Sjúkrahús,
óskipt. Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld verði 136,5 m.kr. á árinu
2010 og lækka um 507,8 m.kr. frá fjárlögum 2009. Lækkunin skýrist í fyrsta lagi af
flutningi 775,8 m.kr. á liðina 353 Sjúkrahúsið á Akureyri, 373 Landspítali, 506
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu og 700 Heilbrigðisstofnanir. Við gerð
gildandi fjárlaga voru fjárheimildir heilbrigðisstofnana lækkaðar um 1,5% og
fjárhæðin lögð í sjóð til endurráðstöfunar, en fyrir dyrum stóð
endurskipulagning á verkefnum heilbrigðisstofnana og heilbrigðisumdæma sem ekki varð
að. Í annan stað eru 10 m.kr. færðar á liðinn 340 Málefni fatlaðra vegna
samnings við Endurhæfingu í Kópavogi um sérhæfða sjúkraþjálfun og ráðgjöf
fyrir fjölfatlaða einstaklinga og 15 m.kr. á liðinn 491 Reykjalundur, Mosfellsbæ
til að byggja upp endurhæfingu við heilaskaðaða. Í þriðja lagi er liðurinn
lækkaður um 32 m.kr. til að mæta áformum ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum.
Í fjórða lagi eru fluttar 11 m.kr. á liðinn 101 Heilbrigðisráðuneyti,
aðalskrifstofa til að mæta kostnaði við launagreiðslur sem til þessa hafa
verið fjármagnaðar af liðnum. Á móti hækkar framlag um samtals 335,6 m.kr. með
flutningi fjárheimilda frá heilbrigðisstofnunum. Á fjárlögum 2009 fólu
sparnaðaráform ráðuneytisins m.a. í sér að hækka hlut sjúklings í kostnaði við
heilbrigðisþjónustu um 360 m.kr. Liðurinn var lækkaður sem þeirri fjárhæð nam
við afgreiðslu fjárlaganna. Um leið og útfærsla lægi fyrir skyldi lækkunin færð
á stofnanir í samræmi við áætlaða hækkun tekna sem af breytingunum hlytist. Það
var gert með millifærslu á fjárheimildum innan ársins og nú endanlega í fjárlögum
2010. Liðurinn sjálfur var lækkaður um 24.4 m.kr. vegna þessa.
383 Sjúkrahótel.
Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld liðarins verði 91,8 m.kr. á árinu 2010 og
lækkar að raungildi um 5,9 m.kr. frá fjárlögum 2009. Lækkunin skýrist af áformum
ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum. Aðrar breytingar skýrast af
verðlagsuppfærslu.
388 Samtök
áhugamanna um áfengismálið. Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld liðarins
verði 646,1 m.kr. á árinu 2010 og lækka að raungildi um 44 m.kr. frá fjárlögum
2009. Lækkunin skýrist af áformum ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum. Aðrar
breytingar sem eru til hækkunar á framlagi skýrast af hækkun tryggingagjalds og
álagningahlutfalli fasteignagjalda og af launa- og verðlagsuppfærslum.
Endurhæfingarstofnanir
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 478 Vistheimilið Bjarg; 479
Hlaðgerðarkot; 491 Reykjalundur, Mosfellsbæ; 492 Heilsustofnun
Náttúrulækningafélags Íslands; 493 Sjálfsbjörg, hjúkrunar- og
endurhæfingarstofnun og 494 Hlein. Allir fjárlagaliðir sem tilheyrt hafa
öldrunarheimilum eru færðir frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og
tryggingamálaráðuneytis, en þeir byrjuðu á 401 Öldrunarstofnanir, almennt og
enduðu á 477 Dagvistun aldraðra, aðrar. Allar fjárheimildir sem
tilheyrðu áðurnefndum liðum voru færðar til félags- og tryggingamálaráðuneytis,
að því undanskildu að 48,5 m.kr. fjárheimild var færð á 301 Landlæknir
vegna útgjalda vistunarmatsnefnda og 46,7 m.kr. voru færðar á 399-1.46 Matskerfi
umönnunarþyngdar hjúkrunarrýma. Útgjöld heilbrigðisráðuneytis lækka um
18.943,5 m.kr. á árinu 2010 frá því sem annars hefði orðið vegna verkefna sem
flutt eru til félags- og tryggingamálaráðuneytis og varða öldrunarþjónustu.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Vistheimilið Bjarg |
51,6 |
55,1 |
58,2 |
5,6 |
12,8 |
Hlaðgerðarkot |
79,7 |
85,8 |
88,8 |
3,5 |
11,4 |
Reykjalundur, Mosfellsbæ |
1.349,1 |
1.352,9 |
1.300,5 |
-3,9 |
-3,6 |
Heilsustofnun Náttúrulækningafélags Íslands |
525,5 |
555,1 |
547,8 |
-1,3 |
4,2 |
Sjálfsbjörg, hjúkrunar- og endurhæfingarstofnun |
434,9 |
457,4 |
481,2 |
5,2 |
10,6 |
Hlein |
105,5 |
108,4 |
107,4 |
-0,9 |
1,8 |
Samtals |
2.546,3 |
2.614,7 |
2.583,9 |
-1,2 |
1,5 |
Í frumvarpinu lækka
útgjöld til endurhæfingarstofnana samtals um 108,5 m.kr. að frátöldum
verðlagsbreytingum og hækkun tryggingagjalds. Breytingin skýrist af lækkun framlags um
136,1 m.kr. til að koma til móts við áform ríkisstjórnar um samdrátt í
ríkisútgjöldum, en upphæðin jafngildir 6,7% lækkun framlags til Reykjalundar,
Mosfellsbæ, Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands og Hleinar. Á móti
hækkar framlag vegna flutnings 15 m.kr. af liðnum 379 Sjúkrahús, óskipt til
að byggja upp endurhæfingu fyrir heilaskaðaða á Reykjalundi. Aðrar breytingar
skýrast af hækkun álagningaprósentu fasteignagjalda um 12,6 m.kr.
Heilsugæsla
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 500 Heilsugæslustöðvar almennt; 501
Sjúkraflutningar. Fjárlagaliðirnir 506-588 eru liðir einstakra heilsugæslustöðva
án starfstengsla við sjúkrahús. Fallið var frá sameiningu Heilbrigðisstofnunarinnar
Siglufirði, Heilsugæslustöðvarinnar Ólafsfirði og Heilsugæslustöðvarinnar Dalvík
í eina stofnun, Heilbrigðisstofnunin Dalvíkur- og Fjallabyggð. Um áramót sameinast
hins vegar Heilbrigðisstofnunin Siglufirði og Heilsugæslustöðin Ólafsfirði, en
Heilsugæslustöðin Dalvík verður rekin áfram með óbreyttu sniði.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu |
5.133,0 |
3.729,5 |
4.057,1 |
8,8 |
-21,0 |
Heilsugæslustöðin Borgarnesi |
161,8 |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Heilsugæslustöðin Búðardal |
89,7 |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Heilsugæslustöðin Dalvík |
93,9 |
0,0 |
102,9 |
- |
9,6 |
Heilsugæslustöðin Grundarfirði |
61,5 |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Heilsugæslustöðin í Salahverfi í Kópavogi |
240,4 |
271,4 |
274,2 |
1,0 |
14,1 |
Heilsugæslustöðin Lágmúla í Reykjavík |
147,5 |
155,3 |
159,1 |
2,4 |
7,9 |
Heilsugæslustöðin Ólafsfirði |
62,7 |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Heilsugæslustöðin Ólafsvík |
96,6 |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Heilsugæslustöðvar, almennt |
127,6 |
729,4 |
291,2 |
-60,1 |
128,2 |
Læknavaktin |
254,0 |
284,8 |
250,7 |
-12,0 |
-1,3 |
Miðstöð heimahjúkrunar á
höfuðborgarsvæðinu |
0,0 |
907,1 |
908,2 |
0,1 |
- |
Samningur við Akureyrarbæ um heilsugæslu |
470,4 |
478,8 |
469,5 |
-1,9 |
-0,2 |
Sjúkraflutningar |
772,0 |
802,3 |
771,0 |
-3,9 |
-0,1 |
Samtals |
7.711,1 |
7.358,6 |
7.283,9 |
-1,0 |
-5,5 |
Heildarfjárveiting til
málefnaflokksins lækkar um 272,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar
almennar verðlagsbreytingar og hækkun tryggingagjalds af launaveltu. Helstu breytingar
á málefnaflokkum eru þær að 189 m.kr. eru færðar af safnlið heilsugæslustöðva
til heilbrigðisstofnana til að efla heimahjúkrun á heilsugæslusviðum þeirra. Í
samræmi við áform ríkisstjórnar um samdrátt er í frumvarpinu gert ráð fyrir að
draga úr útgjöldum málaflokksins sem nemur 244,4 m.kr. á verðlagi gildandi
fjárlaga, en haldið verður áfram við endurskoðun á vinnufyrirkomulagi og verkferlum
til að ná niður útgjöldum.
500
Heilsugæslustöðvar, almennt. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld dragist
saman um 443,4 m.kr. á næsta ári að frátöldum verðlagsbreytingum og hækkun
tryggingagjalds. Af liðnum eru færðar samtals 453,4 m.kr. til annarra fjárlagaliða
innan þessa málaflokks og til heilsugæslusviða heilbrigðisstofnana, m.a. til að efla
heimahjúkrun, til greiðslu húsaleigusamninga og til að efla
geðheilbrigðisþjónustu. Nánari grein er gerð fyrir þeim tillögum undir viðkomandi
liðum. Á fjárlagaliðinn eru færðar 10 m.kr. af 506 Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, en ráðuneytið mun standa straum af kostnaði við
geðheilbrigðisþjónustu við hóp heyrnarlausra nemenda sem urðu fyrir ofbeldi í
heimavist Heyrnleysingjaskóla Íslands á sínum tíma og fjölskyldur þeirra.
Fjárveitingin er tímabundin til ársins 2011 og var veitt til verkefnisins á
fjárlögum þessa árs.
501
Sjúkraflutningar. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um 771 m.kr. á
næsta ári sem jafngildir um 53,5 m.kr. lækkun að raungildi frá fjárlögum þessa
árs sem skýrist af lækkun fjárframlaga til þjónustusamninga um sjúkraflutninga
vegna áforma ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum.
506 Heilsugæsla á
höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt frumvarpinu verða rekstrargjöld 4.057,1 m.kr.
á næsta ári og jafngildir það um 207,1 m.kr. hækkun að raungildi frá fjárlögum
þessa árs. Í fyrsta lagi er lagt til að 115 m.kr. verði fluttar af lið 500
Heilsugæslustöðvar, almennt til að efla heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ,
Hafnarfirði og Mosfellsbæ. Í öðru lagi eru 68,8 m.kr. fluttar aftur til
heilsugæslunnar af lið 379 Sjúkrahús, óskipt, en við gerð fjárlaga
fyrir árið 2009 var fjárheimildin flutt þangað til endurráðstöfunar. Í þriðja
lagi eru 50 m.kr. færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til að mæta
kostnaði við námsstöður sérfræðinga í heimilislækningum. Í fjórða lagi eru
33,4 m.kr. færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til að mæta
kostnaði við húsaleigu í nýju húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar í Árbæ. Í
fimmta lagi hækkar liðurinn um 35,1 m.kr. til að mæta leigugjöldum, að frádregnum
fasteignagjöldum til Fasteigna ríkissjóðs, í samræmi við samning þar um. Að
síðustu eru 2,1 m.kr. færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til að
ráða í hlutastöðu sálfræðings við Heilsugæslustöðina Árbæ. Liðurinn lækkar
um 50 m.kr. til að mæta áformum ríkisstjórnar um samdrátt í rekstrarútgjöldum. Í
öðru lagi eru 15,6 m.kr. fluttar af liðnum á 515 Heilsugæslustöðin Lágmúla.
Framvegis mun Heilsugæslustöðin Lágmúla greiða fyrir rannsóknir sem stöðin hefur
stofnað til. Í þriðja lagi eru 8,4 m.kr. fluttar af liðnum á 517 Læknavaktin.
Framvegis fellur kostnaður við laun lækna sem taka næturvaktir hjá Læknavaktinni og
ná ekki löggiltum hvíldartíma á Læknavaktina. Í fjórða lagi flytjast 10 m.kr. af
liðnum á lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt, sbr. skýringar hér ofan. Þá
fellur 8 m.kr. tímabundið framlag til íslenska upplýsingasamfélagsins niður. Aðrar
breytingar umfram launa- og verðlagsliði og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun
framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009 og
flutningi framlags til að mæta kostnaði við sáravarnabúnað.
508 Miðstöð
heimahjúkrunar á höfuðborgarsvæðinu. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
nemi um 908,2 m.kr. á næsta ári. Lækkun rekstargjalda jafngildir um 21,9 m.kr. að
raungildi frá fjárlögum þessa árs sem skýrist í fyrsta lagi af um 59,8 m.kr.
lækkun til að mæta áformum ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum. Í öðru lagi
lækkar liðurinn um 15,1 m.kr. vegna ofreiknaðra verðlagshækkana við 3. umr.
fjárlagafrumvarps 2009. Í þriðja lagi hækkar liðurinn um 50 m.kr. til að uppfylla
ákvæði samnings við Reykjavíkurborg um heimahjúkrun. Þá eru 3 m.kr. fluttar á
liðinn af 206 Sjúkratryggingar, hjálpartæki til að mæta kostnaði við
sáravarnarbúnað. Aðrar breytingar á fjárheimildum skýrast af launa- og
verðlagsliðum og hækkun tryggingagjalds.
515
Heilsugæslustöðin Lágmúla í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að
rekstrargjöld nemi um 159,1 m.kr. á næsta ári og jafngildir það um 3,3 m.kr. hækkun
að raungildi frá fjárlögum þessa árs. Í fyrsta lagi eru 15,6 m.kr. færðar af lið
506 Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu, en framvegis mun
Heilsugæslustöðin Lágmúla greiða fyrir rannsóknir sem stöðin stofnar til. Í
öðru lagi lækkar liðurinn um 10,4 m.kr. til að mæta áformum ríkisstjórnar um
samdrátt í útgjöldum. Aðrar breytingar umfram launa- og verðlagsliði skýrast af
lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009 og
lækkun á framlagi vegna fasteignagjalda en umsýsla með fasteignum ráðuneytisins
færist til Fasteigna ríkissjóðs.
517 Læknavaktin. Gert
er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um 250,7 m.kr. á næsta ári og jafngildir það
um 40,3 m.kr. lækkun að raungildi frá fjárlögum þessa árs. Á liðinn eru færðar
8,4 m.kr. af 506 Heilsugæsla á höfuðborgarsvæðinu, en framvegis fellur
kostnaður við laun lækna sem taka næturvaktir hjá Læknavaktinni og ná ekki
löggiltum hvíldartíma á Læknavaktina. Liðurinn lækkar um 19,1 m.kr. til að mæta
áformum ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Þá lækkar liðurinn um 17,2
m.kr. vegna fækkunar í fjölda koma á Læknavaktina. Aðrar breytingar umfram launa- og
verðlagsliði og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri
komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009 og hækkun á
álagningaprósentu fasteignagjalda.
552
Heilsugæslustöðin Dalvík. Horfið var frá fyrri áformum um að sameina
Heilbrigðisstofnunina Siglufirði og heilsugæslustöðvarnar á Dalvík og Ólafsfirði.
Heilsugæslustöðin Dalvík verður rekin áfram með óbreyttu sniði. Fjárveiting
heilsugæslustöðvarinnar er færð aftur af viðfangi 756 Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð
á viðfang Heilsugæslustöðvarinnar Dalvík. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
nemi um 102,9 m.kr. á næsta ári og jafngildir það um 0,6 m.kr. hækkun að raungildi
frá fjárlögum þessa árs. Í fyrsta lagi eru 5 m.kr. færðar af lið 500
Heilsugæslustöðvar, almennt til að efla heimahjúkrun við aldraða. Lögð er til
2,2 m.kr. lækkun framlags til að mæta áformum ríkisstjórnar um samdrátt í
útgjöldum. Þá lækkar liðurinn um 2 m.kr. vegna samkomulags við Fasteignir
ríkissjóðs, en í ljósi breytts efnahagsástands var ákveðið að Fasteignir
ríkissjóðs veittu tímabundið 35% afslátt af húsaleigu allra heilbrigðisstofnana
til að fjármagna síðasta áfanga flutnings fasteigna frá heilbrigðisráðuneytinu
til Fasteigna ríkissjóðs. Aðrar breytingar umfram launa- og verðlagsliði og hækkun
tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í
fjárlögum ársins 2009.
553 Samningur við
Akureyrarbæ um heilsugæslu. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um 469,5
m.kr. á næsta ári og jafngildir það um 23 m.kr. lækkun að raungildi frá
fjárlögum þessa árs sem skýrist í fyrsta lagi af 32,1 m.kr. lækkun framlags til að
mæta áformum ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum. Í öðru lagi hækkar
liðurinn um 8,4 m.kr. til að mæta leigugjöldum, að frádregnum fasteignagjöldum til
Fasteigna ríkissjóðs, í samræmi við samning þar um. Í þriðja lagi eru 1,2 m.kr.
fluttar á liðinn af 206 Sjúkratryggingar, hjálpartæki, en í samræmi við
reglugerð um styrki vegna hjálpartækja nr. 1138/2008 hættir Hjálpartækjamiðstöðin
að greiða fyrir einnota efni til húðvarnar og sáraumbúðir og heimahjúkrun
heilsugæslustöðva mun framvegis úthluta sáravarnarbúnaðinum til sjúklinga sem
þurfa á honum að halda. Aðrar breytingar umfram launa- og verðlagsliði og hækkun
tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í
fjárlögum ársins 2009.
588
Heilsugæslustöðin í Salahverfi í Kópavogi. Gert er ráð fyrir að
rekstrargjöld nemi um 274,2 m.kr. á næsta ári og jafngildir það um 2,1 m.kr. hækkun
að raungildi frá fjárlögum þessa árs sem skýrist í fyrsta lagi af 14 m.kr. hækkun
framlags í samræmi við samning um rekstur stöðvarinnar. Í öðru lagi lækkar
liðurinn um 17,3 m.kr. til að mæta áformum ríkisstjórnar um samdrátt í
útgjöldum. Aðrar breytingar umfram launa- og verðlagsliði og hækkun tryggingagjalds
skýrast af lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum
ársins 2009.
Heilbrigðisstofnanir
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 700 Heilbrigðisstofnanir og
liðirnir 711795 sem eru fjárlagaliðir einstakra heilbrigðisstofnana. Nokkrar
breytingar verða á liðunum einkum vegna sameininga stofnana. Í fyrsta lagi falla
liðirnir 711 Heilbrigðisstofnunin Akranesi, 735 Heilbrigðisstofnunin Hólmavík
og 741 Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga niður og sameinast liðnum 716
Heilbrigðisstofnun Vesturlands, en það er ný stofnun sem tekur til starfa 1.
janúar 2010. Í öðru lagi fellur liðurinn 746 Heilbrigðisstofnunin Blönduósi og
Sauðárkróki niður og færast fjárheimildir hans til baka á viðföngin 745
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi og 751 Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki
þar sem fallið var frá áformum um sameiningu stofnananna. Í þriðja lagi færist
hluti fjárheimildar 756 Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð til baka á liðinn 552
Heilsugæslustöðin Dalvík, þar sem fallið var frá sameiningu
Heilbrigðisstofnunarinnar Siglufirði og heilsugæslustöðvanna í Ólafsfirði og á
Dalvík í eina stofnun. Ný stofnun tekur til starfa 1. janúar n.k., en
þá sameinast Heilbrigðisstofnunin Siglufirði og Heilsugæslustöðin Ólafsfirði og
til verður Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
mkr |
Fjárlög
2009
mkr |
Frumvarp
2010
mkr |
Breyting frá fjárl % |
Breyting frá reikn % |
Heilbrigðisstofnanir |
516,8 |
426,9 |
281,1 |
-34,2 |
-45,6 |
Heilbrigðisstofnun Austurlands |
2.007,7 |
1.991,3 |
2.004,4 |
0,7 |
-0,2 |
Heilbrigðisstofnun Suð-Austurlands |
177,0 |
190,7 |
181,9 |
-4,6 |
2,8 |
Heilbrigðisstofnun Suðurlands |
1.970,1 |
1.900,4 |
1.990,0 |
4,7 |
1,0 |
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja |
1.724,8 |
1.681,5 |
1.668,5 |
-0,8 |
-3,3 |
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða |
1.021,8 |
1.040,9 |
1.008,0 |
-3,2 |
-1,4 |
Heilbrigðisstofnun Vesturlands |
2.390,9 |
2.792,9 |
2.750,6 |
-1,5 |
15,0 |
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga |
928,7 |
909,0 |
914,1 |
0,6 |
-1,6 |
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi |
396,4 |
434,1 |
390,3 |
-10,1 |
-1,5 |
Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð |
456,1 |
472,9 |
445,7 |
-5,8 |
-2,3 |
Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði |
260,6 |
270,9 |
247,2 |
-8,7 |
-5,1 |
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki |
823,2 |
885,5 |
806,4 |
-8,9 |
-2,0 |
Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum |
709,7 |
676,7 |
663,7 |
-1,9 |
-6,5 |
St Jósefsspítali, Sólvangur |
1.496,6 |
1.362,7 |
1.364,0 |
0,1 |
-8,9 |
Samtals |
14.880,4 |
15.036,4 |
14.715,9 |
-2,1 |
-1,1 |
Heildarfjárveiting til
málefnaflokksins lækkar um 919,6 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar
almennar verðlagsbreytingar og hækkun tryggingagjalds. Í samræmi við áform
ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum er í frumvarpinu gert ráð fyrir að
draga úr útgjöldum til málaflokksins um 866,2 m.kr. á verðlagi gildandi fjárlaga.
Við útfærslu á þeim aðhaldsaðgerðunum sem ráðast þarf í er almennt haft að
leiðarljósi að standa vörð um grunnþjónustuna. Þá er skýrari verkaskiptingu
heilbrigðisstofnana ætlað að skila fjárhagslegum ávinningi. Auk þess verður
haldið áfram við endurskoðun á vinnufyrirkomulagi, vaktkerfum og aukagreiðslum með
það að markmiði að lækka útgjöld Einnig skal ná fram lækkun í lyfjaútgjöldum
stofnana með innleiðingu lyfjalista og markvissari notkun lyfja. Þá mun ráðuneytið
beita sér fyrir samstarfi heilbrigðisstofnana með það að markmiði að ná fram
hagræðingu í sameiginlegum innkaupum, m.a. á lyfjum og öðrum rekstrarvörum. Að
síðustu er gert ráð fyrir að fækka um samtals 35 hjúkrunarrými á
heilbrigðisstofnunum. Að baki þeirri tillögu liggur mat á þörf fyrir fjölda rýma
eftir svæðum og reynslutölur um nýtingu rýma hjá viðkomandi stofnunum. Einnig er
stefnt að því að breyta greiðslufyrirkomulagi fyrir hjúkrunarrými þannig að
aðeins verði greitt fyrir nýtt rými. Að öðru leyti skýrast helstu breytingar á
framlögum af eftirfarandi tilefnum. Í fyrsta lagi er 189 m.kr. fjárheimild flutt af 500
Heilsugæslustöðvar, almennt til að efla heimahjúkrun á landsbyggðinni, en á
fjárlögum þessa árs var framlag til heimahjúkrunar aukið í samræmi við samkomulag
við eldri borgara þar um. Í öðru lagi eru 100 m.kr. færðar af liðnum 379
Sjúkrahús, óskipt til að mæta ófyrirséðum rekstrarkostnaði í málaflokknum.
Í þriðja lagi er framlag hækkað um 29,6 m.kr. til að mæta kostnaði við síðasta
áfanga flutnings á umsjón með fasteignum ráðuneytisins til Fasteigna ríkissjóðs.
Í ljósi breytts efnahagsástands og til að gera þennan flutning á síðasta áfanga
að veruleika var ákveðið að Fasteignir ríkissjóðs veiti tímabundið 35% afslátt
af húsaleigugreiðslum allra stofnana. Á hinn bóginn er fellt niður tímabundið
framlag til stofnkostnaðarverkefna að fjárhæð 259,6 m.kr. sem nú er lokið.
700
Heilbrigðisstofnanir. Gert er ráð fyrir að heildarútgjöld verði 281,1 m.kr.
á næsta ári og jafngildir það 146,9 m.kr. lækkun að raungildi frá fjárlögum
þessa árs. Það skýrist einkum af niðurfellingu á tímabundnu 259,6 m.kr. framlagi
til stofnkostnaðar. Framlagið var til framkvæmda við heilbrigðisstofnanirnar
Suðurlandi, Suðurnesjum og Siglufirði til verkefna sem nú er lokið. Á móti hækkar
framlag til stofnkostnaðar um 14,9 m.kr. til endurbóta á Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga. Þá er flutt 100 m.kr. rekstrarframlag af safnliðnum 379 Sjúkrahús,
óskipt, til að mæta ófyrirséðum kostnaði í málaflokknum. Aðrar breytingar á
rekstrarframlagi skýrast af millifærslu framlags til Heilbrigðisstofnunarinnar
Vestmannaeyjum til að fjármagna rekstrarleigu myndgreiningarbúnaðar.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Tæki og búnaður |
0,0 |
30,0 |
30,0 |
0,0 |
- |
Heilbrigðisstofnunin Siglufirði |
162,0 |
57,0 |
10,0 |
-82,5 |
-93,8 |
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga |
35,6 |
35,1 |
50,0 |
42,5 |
40,4 |
Heilbrigðisstofnun Austurlands |
0,5 |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Heilbrigðisstofnun Suðurlands |
233,2 |
245,1 |
90,0 |
-63,3 |
-61,4 |
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja |
55,5 |
57,5 |
0,0 |
- |
- |
Samtals |
486,8 |
424,7 |
180,0 |
-57,6 |
-63,0 |
716
Heilbrigðisstofnun Vesturlands. Gert er ráð fyrir að útgjöld nýrrar
stofnunar verði 2.750,6 m.kr. á árinu 2010. Í fjárlögum þessa árs voru
fjárheimildir liðanna 522 Heilsugæslustöðin Borgarnesi, 524 Heilsugæslustöðin
Ólafsvík, 525 Heilsugæslustöðin Grundarfirði, 526 Heilsugæslustöðin Búðardal og
715 St. Franciskusspítali, Stykkishólmi færðar á þennan lið vegna áforma um
sameiningu þessara stofnana. Frá þeirri sameiningu var fallið, en ákveðið að
sameina heilbrigðisstofnanir og heilsugæslustöðvar í heilbrigðisumdæmi Vesturlands
í eina stofnun. Á fjárlagaviðfangið eru því fluttar fjárheimildir liðanna 711
Heilbrigðisstofnunin Akranesi, 735 Heilbrigðisstofnunin Hólmavík og 741
Heilbrigðisstofnunin Hvammstanga, samtals að fjárhæð 1.988,7 m.kr. Að raungildi
lækka útgjöld nýrrar stofnunar um 132,6 m.kr. frá fjárlögum þessa árs sem
skýrist einkum af 176,4 m.kr. lækkun framlags í samræmi við áform ríkisstjórnar um
sparnað í rekstri. Framlag til nýrrar stofnunar hækkar í fyrsta lagi um 21,3 m.kr.
til að mæta kostnaði við húsaleigu umfram fasteignagjöld. og í þriðja lagi eru 23
m.kr. færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til að efla
heimahjúkrun við aldraða á svæðinu. Aðrar breytingar til hækkunar á nettó
framlagi um 89,8 m.kr. skýrist einkum af launaverðlagsbótum, hækkun tryggingagjalds,
flutningi framlags til að mæta kostnaði við sáravarnabúnað og rekstrarleigu
röntgenaflesara og lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í
fjárlögum ársins 2009.
721
Heilbrigðisstofnunin Patreksfirði. Gert er ráð fyrir að útgjöld verði
247,2 m.kr. á næsta ári, en það jafngildir 35,5 m.kr. lækkun að raungildi frá
fjárlögum þessa árs, sem skýrist einkum af 31,5 m.kr. lækkun framlags í samræmi
við áform ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Þá lækka leigugjöld til
Fasteigna ríkissjóðs um 4,0 m.kr. vegna tímabundins afsláttar af húsaleigu.
726
Heilbrigðisstofnun Vestfjarða. Gert er ráð fyrir að útgjöld verði 1.008
m.kr. á næsta ári, en það jafngildir 67,2 m.kr. lækkun að raungildi frá
fjárlögum þessa árs, sem skýrist í fyrsta lagi af 65,5 m.kr. lækkun framlags í
samræmi við áform ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í öðru lagi
lækka leigugjöld til Fasteigna ríkissjóðs um 15,6 m.kr. vegna tímabundins afsláttar
af húsaleigu. Þá eru 14,0 m.kr. færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt
til að efla heimahjúkrun við aldraða. Aðrar breytingar umfram launa- og
verðlagsliði og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri
komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009 og flutningi framlags til að
mæta kostnaði við sáravarnabúnað.
745
Heilbrigðisstofnunin Blönduósi. Gert er ráð fyrir að útgjöld verði 390,3
m.kr. á árinu 2010. Fjárheimildir stofnunarinnar árið 2009 að fjárhæð 429,3 m.kr.
eru fluttar til baka af lið 746 Heilbrigðisstofnunin Blönduósi og
Sauðárkróki, en horfið var frá sameiningu þessara stofnana sem fyrirhuguð var
á árinu 2009. Gert er ráð fyrir 55,1 m.kr. raunlækkun fjárheimilda frá fyrra ári
sem skýrist í fyrsta lagi af 45,1 m.kr. lækkun í samræmi við áform ríkisstjórnar
um sparnað í rekstrargjöldum. Í öðru lagi er framlagið lækkað annað árið í
röð um 9 m.kr. til samræmis við niðurstöðu reiknilíkans um rekstrarkostnað
heilsugæslustöðva á landsbyggðinni. Í þriðja lagi lækka leigugjöld til Fasteigna
ríkissjóðs um 9,9 m.kr. vegna tímabundins afsláttar af húsaleigu. Aðrar breytingar
umfram launa- og verðlagsbætur og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags
vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009.
751
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
verði 806,4 m.kr. árið 2010. Fjárheimildir stofnunarinnar árið 2009 eru fluttar af
lið 746 Heilbrigðisstofnunin Blönduósi og Sauðárkróki, en horfið var
frá sameiningu þessara stofnana sem fyrirhuguð var árið 2009. Gert er ráð fyrir
115,3 m.kr. raunlækkun fjárheimilda frá fyrra ári sem skýrist í fyrsta lagi af
lækkun framlags um 100,8 m.kr. í samræmi við áform ríkisstjórnar um sparnað í
rekstrargjöldum. Í öðru lagi lækka leigugjöld til Fasteigna ríkissjóðs um 14,3
m.kr. vegna tímabundins afsláttar af húsaleigu. Aðrar breytingar umfram launa- og
verðlagsbætur og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri
komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009.
756
Heilbrigðisstofnunin Fjallabyggð. Gert er ráð
fyrir að rekstrargjöld þessarar nýju stofnunar nemi samtals 445,7 m.kr. og jafngildir
það um 148,3 m.kr. lækkun að raungildi frá fjárlögum þessa árs. Horfið var frá
því að sameina Heilbrigðisstofnunina Siglufirði og heilsugæslustöðvarnar í
Ólafsfirði og á Dalvík eins og til stóð. Þess í stað er ákveðið að sameina 755
Heilbrigðisstofnunina Siglufirði og 551 Heilsugæslustöðina Ólafsfirði í eina
stofnun frá 1. janúar 2010. Fjárheimildir Heilsugæslustöðvarinnar Dalvík að
fjárhæð 100,4 m.kr. eru því færðar til baka á sinn fyrri fjárlagalið. Lækkun
framlags vegna aðhaldsáforma nemur um 39,6 m.kr., þ.a. eru 25 m.kr. sem er lækkun
annað árið í röð til samræmis við niðurstöðu reiknilíkans um rekstrarkostnað
heilsugæslustöðva á landsbyggðinni. Í öðru lagi lækka leigugjöld til Fasteigna
ríkissjóðs um 8,2 m.kr. vegna tímabundins afsláttar af húsaleigu. Aðrar breytingar
umfram launa- og verðlagsbætur og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags
vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009.
761
Heilbrigðisstofnun Þingeyinga. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um
914,1 m.kr. á næsta ári. Það jafngildir 23,5 m.kr. lækkun að raungildi frá
fjárlögum þessa árs og skýrist í fyrsta lagi af 25,3 m.kr. lækkun framlags í
samræmi við áform ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í öðru lagi
lækka leigugjöld til Fasteigna ríkissjóðs um 14,9 m.kr. vegna tímabundins afsláttar
af húsaleigu. Þá er lagt til að flytja 17 m.kr. framlag til stofnunarinnar til að
efla heimahjúkrun við aldraða. Aðrar breytingar umfram launa- og verðlagsliði og
hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin
voru í fjárlögum ársins 2009 og flutningi framlags til að mæta kostnaði við
sáravarnabúnað.
777
Heilbrigðisstofnun Austurlands. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi
2.004,4 m.kr. á næsta ári. Það jafngildir 56,3 m.kr. lækkun framlags að raungildi
frá fjárlögum þessa árs og skýrist í fyrsta lagi af lækkun framlags um 79,5 m.kr.
í samræmi við áform ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í öðru lagi
lækka leigugjöld til Fasteigna ríkissjóðs um 16,8 m.kr. vegna tímabundins afsláttar
af húsaleigu. Í þriðja lagi er lögð til lækkun framlags um 2,2 m.kr. vegna hærri
komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009. Í fjórða lagi er gerð
tillaga um að flytja 42 m.kr. af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til
stofnunarinnar til að efla heimahjúkrun við aldraða á svæðinu. Aðrar breytingar
umfram launa- og verðlagsbætur og hækkun tryggingagjalds skýrast af flutningi framlags
innan ramma til að mæta kostnaði við sáravarnabúnað og endurráðstöfun framlags
vegna stöðu læknis.
779
Heilbrigðisstofnun Suð-Austurlands. Gert er ráð
fyrir að rekstrargjöld verði 181,9 m.kr. á næsta ári. Það jafngildir lækkun
framlags um 15,8 m.kr. að raungildi frá fjárlögum þessa árs og skýrist í fyrsta
lagi af lækkun framlags um 12,8 m.kr. í samræmi við áform ríkisstjórnar um lækkun
ríkisútgjalda. Í öðru lagi lækka leigugjöld til Fasteigna ríkissjóðs um 2,9
m.kr. vegna tímabundins afsláttar af húsaleigu. Aðrar breytingar umfram launa- og
verðlagsbætur og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri
komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009.
781
Heilbrigðisstofnunin Vestmannaeyjum. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
verði 663,7 m.kr. á næsta ári, en það er lækkun að raungildi frá fjárlögum
þessa árs um 32,2 m.kr., sem skýrist í fyrsta lagi af 28,4 m.kr. lækkun framlags í
samræmi við áform um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í öðru lagi lækka leigugjöld
til Fasteigna ríkissjóðs um 5,8 m.kr. vegna tímabundins afsláttar af húsaleigu. Þá
eru færðar 2,2 m.kr. af safnlið ráðuneytisins 700 Heilbrigðisstofnanir, almennur
rekstur til að mæta kostnaði við rekstrarleigu myndgreiningarbúnaðar sem
heimiluð voru kaup á árið 2008. Aðrar breytingar umfram launa- og verðlagsbætur og
hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin
voru í fjárlögum ársins 2009.
787
Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld verð
1.990 m.kr. á næsta ári og jafngildir það um 31,1 m.kr. hækkun að raungildi frá
fjárlögum þessa árs. Hækkun framlagsins skýrist í fyrsta lagi af leigugjöldum, en
umsjón með fasteignum stofnunarinnar er nú flutt til Fasteigna ríkissjóðs. Í öðru
lagi eru 50 m.kr. færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til að efla
heimahjúkrun við aldraða á svæðinu. Á hinn bóginn lækkar framlagið um 77,6 m.kr.
í samræmi við áform ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Aðrar
breytingar umfram launa- og verðlagsliði og hækkun tryggingagjalds skýrast af lækkun
framlags vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009 og
flutningi framlags innan ramma ráðuneytisins til að mæta kostnaði við
sáravarnabúnað.
791
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Gert er ráð fyrir
að rekstrargjöld verði 1.668,5 m.kr. á næsta ári og jafngildir það um 68,5 m.kr.
lækkun að raungildi frá fjárlögum þessa árs. Lækkun framlagsins skýrist í fyrsta
lagi af 101,5 lækkun í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar um samdrátt í
ríkisútgjöldum. Í öðru lagi lækka leigugjöld til Fasteigna ríkissjóðs um 9,3
m.kr. vegna tímabundins afsláttar af húsaleigu. Í þriðja lagi lækkar framlagið um
1,4 m.kr. vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í fjárlögum ársins 2009. Í
fjórða lagi eru 43 m.kr. færðar af lið 500 Heilsugæslustöðvar, almennt til
að efla heimahjúkrun við aldraða á svæðinu. Aðrar breytingar umfram launa- og
verðlagsbætur og hækkun tryggingagjalds skýrast af flutningi framlags innan ramma til
að mæta kostnaði við sáravarnabúnað.
795 St.
Jósefsspítali, Sólvangur. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld verði 1.364
m.kr. á næsta ári og jafngildir það um 53,8 m.kr. lækkun að raungildi frá
fjárlögum þessa árs. Lækkunin skýrist í fyrsta lagi af 82,2 m.kr. lækkun framlags
í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í öðru
lagi lækkar framlagið um 5,0 m.kr. vegna hærri komugjalda sem ákveðin voru í
fjárlögum ársins 2009. Í þriðja lagi hækkar framlagið um 33,4 m.kr. vegna
leigugjalda að frádregnum fasteignagjöldum, en umsjón með fasteignum stofnunarinnar
er nú flutt til Fasteigna ríkissjóðs. Aðrar breytingar á framlagi skýrast af launa-
og verðlagsbótum og hækkun tryggingagjalds.
Eftirlits- og
stjórnsýslustofnanir
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 301 Landlæknir; 305 Lýðheilsustöð;
324 Heyrnar- og talmeinastöð Íslands; 327 Geislavarnir ríkisins og 397 Lyfjastofnun.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Geislavarnir ríkisins |
82,2 |
93,9 |
78,5 |
-16,4 |
-4,5 |
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands |
225,7 |
139,0 |
128,7 |
-7,4 |
-43,0 |
Landlæknir |
351,7 |
317,9 |
344,9 |
8,5 |
-1,9 |
Lyfjastofnun |
331,5 |
178,2 |
159,8 |
-10,3 |
-51,8 |
Lýðheilsustöð |
312,3 |
325,5 |
348,0 |
6,9 |
11,4 |
Sjónstöð Íslands |
227,5 |
0,0 |
0,0 |
- |
- |
Samtals |
1.530,9 |
1.054,5 |
1.059,9 |
0,5 |
-30,8 |
Heildarfjárveiting til
málefnaflokksins verður 1.059,9 m.kr. á næsta ári og lækkar um 19,2 m.kr. frá
gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar almennar verðlagsbreytingar og hækkun
tryggingagjalds. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að draga úr útgjöldum til
eftirlits- og stjórnsýslustofnana um 97,1 m.kr. í samræmi við ákvörðun
ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum. Unnið er að endurskipulagningu á verkefnum
eftirlits- og stjórnsýslustofnana heilbrigðisráðuneytisins, með það að markmiði
að efla og einfalda stjórnsýsluna og ná fram hagræðingu.
301 Landlæknir. Gert
er ráð fyrir að rekstrargjöld aukist um 16,9 m.kr. á næsta ári umfram launa- og
verðlagshækkanir. Skýrist það af þremur tilefnum. Fyrst er að telja 31,6 m.kr.
lækkun til að mæta áformum ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í annan
stað eru 48,5 m.kr. fluttar á liðinn af 401 Öldrunarstofnanir, almennt, en
rekstur vistunarmatsnefnda og hýsing RAI matskerfa fyrir vistunarmat verður framvegis
hjá landlækni.
305
Lýðheilsustöð. Gert er ráð fyrir að rekstrarútgjöld nemi um 348 m.kr. á
næsta ári og jafngildir það um 16,9 m.kr. hækkun að raungildi frá fjárlögum
þessa árs. Í fyrsta lagi er lagt til að framlög í Forvarnasjóð hækki um 21,4
m.kr. í samræmi við endurskoðaða áætlun um hækkun tekna af áfengisgjaldi. Í
öðru lagi hækkar liðurinn um 20 m.kr. í samræmi við áætlun um lögbundið framlag
af tóbaksvarnargjaldi. Á móti kemur 24,5 m.kr. lækkun til að mæta áformum
ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum.
324 Heyrnar- og
talmeinastöð Íslands. Gert er ráð fyrir að rekstrarútgjöld nemi 128,7
m.kr. á næsta ári. Það jafngildir 13,8 m.kr. lækkun framlags að raungildi frá
fjárlögum þessa árs sem skýrist af lækkun framlags til að mæta áformum
ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum.
327 Geislavarnir
ríkisins. Gert er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um 78,5 m.kr. á næsta
ári. Það jafngildir 17,4 m.kr. lækkun framlags að raungildi frá fjárlögum þessa
árs. Lækkunin skýrist í fyrsta lagi af 9,4 m.kr. lækkun framlags til að mæta
áformum ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í annan stað fellur niður 8
m.kr. tímabundin fjárveiting til kaupa á tækjum og öðrum búnaði.
397 Lyfjastofnun. Gert
er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um 159,8 m.kr. á næsta ári og jafngildir það
um 21,8 m.kr. lækkun framlags að raungildi frá fjárlögum þessa árs. Lækkunin
skýrist í fyrsta lagi af 17,8 m.kr. lækkun framlags til að mæta áformum
ríkisstjórnar um samdrátt í ríkisútgjöldum. Í öðru lagi fellur niður
tímabundin fjárveiting til íslenska upplýsingasamfélagsins frá 2009.
Annað
Eftirfarandi
fjárlagaliðir teljast til þessa málefnaflokks: 340 Málefni fatlaðra og 399
Heilbrigðismál ýmis starfsemi.
Rekstrargrunnur |
Reikningur
2008
m.kr. |
Fjárlög
2009
m.kr. |
Frumvarp
2010
m.kr. |
Breyting frá fjárl. % |
Breyting frá reikn. % |
Heilbrigðismál, ýmis starfsemi |
1.098,3 |
1.249,8 |
1.241,0 |
-0,7 |
13,0 |
Málefni fatlaðra |
305,8 |
315,3 |
317,2 |
0,6 |
3,7 |
Samtals |
1.404,1 |
1.565,1 |
1.558,2 |
-0,4 |
11,0 |
Heildarfjárveiting til
málefnaflokksins lækkar um 47,0 m.kr. frá gildandi fjárlögum þegar frá eru taldar
almennar verðlagsbreytingar og hækkun tryggingagjalds. Helstu breytingar í frumvarpinu
eru að gert er ráð fyrir að draga úr útgjöldum málaflokksins sem nemur 102,1 m.kr.
á verðlagi gildandi fjárlaga í samræmi við áform ríkisstjórnar um samdrátt í
útgjöldum.
340 Málefni fatlaðra. Gert
er ráð fyrir að rekstrargjöld nemi um 317,2 m.kr. og dragist saman um 7,8 m.kr. að
raungildi á milli ára. Í fyrsta lagi er lögð til 20,3 m.kr. lækkun fjárheimilda
vegna samninga og styrkja til félagasamtaka sem undir liðinn heyra, í samræmi við
áform ríkisstjórnar um samdrátt í útgjöldum. Í öðru lagi eru 10 m.kr. færðar
á liðinn af 379 Sjúkrahús, óskipt til að gera samning við Endurhæfingu í
Kópavogi um sérhæfða sjúkraþjálfun og ráðgjöf fyrir við fjölfatlaða
einstaklinga. Aðrar breytingar á fjárheimildum málaflokksins skýrast af hækkun
fasteignagjalda, verðlagsbreytingum og hækkun tryggingagjalds.
399
Heilbrigðismál, ýmis starfsemi. Gert er ráð fyrir að útgjöld liðarins
verði 1.241 m.kr. á næsta ári og lækki um 39,2 m.kr. að raungildi frá fjárlögum
þessa árs. Lögð er til 81,8 m.kr. lækkun fjárheimilda vegna samninga og styrkja til
félagasamtaka sem undir fjárlagaliðinn heyra, í samræmi við áform ríkisstjórnar
um samdrátt í útgjöldum. Þá er í öðru lagi lögð til 47,6 m.kr. tímabundin
hækkun í eitt ár til viðbúnaðar gegn farsóttum til að kaupa bóluefni gegn
svínaflensuveirunni. Í þriðja lagi er 46,7 m.kr. framlag flutt af lið 401
Hjúkrunarheimili, almennt til reksturs og umsýslu RAI-kerfa í kjölfar breytinga
sem gerðar hafa verið á verkskiptingu félags- og tryggingamálaráðuneytis og
heilbrigðisráðuneytis um öldrunarmál. Í fjórða lagi eru 35,3 m.kr. fluttar á lið
101 Heilbrigðisráðuneyti, aðalskrifstofa til eftirlits með styrkjum og
skuldbindandi samningum á vegum ráðuneytisins. Í fimmta lagi eru 13,4 m.kr. fluttar á
lið 101 Heilbrigðisráðuneyti, aðalskrifstofa, en laun sérfræðinga sem
starfa hjá ráðuneytinu við uppbyggingu á sjúkraskrárkerfi og
heilbrigðisupplýsingum hafa verið greidd af lið upplýsingatæknimála. Að síðustu
er veitt 2 m.kr. tímabundin fjárveiting í eitt ár til Íslenska
upplýsingasamfélagsins til verkefnis um upplýsingar um rétt til afsláttar í
heilbrigðisþjónustunni. Markmið verkefnisins er að gera afsláttarkerfið rafrænt
þannig að sá sem þiggur þjónustu heilbrigðiskerfisins njóti strax þess afsláttar
sem hann á rétt á og þurfi ekki af safna kvittunum eða sækja um það sem hann á
rétt á samkvæmt lögum. Þá fellur niður tímabundin 5 m.kr. fjárveiting til sama
verkefnis á árinu 2009. Aðrar breytingar skýrast af verðlagsbreytingum og hækkun
tryggingagjalds.
Rekstrargrunnur,
m.kr. |
Fjárlög
2009 |
Frumvarp 2010 |
Sundurliðun
á óskipt viðfangsefni
08-399-1.98 Ýmis framlög heilbrigðisráðuneytisins |
Gæðastyrkir
heilbrigðisráðuneytisins |
2,5 |
2,4 |
Athvarf fyrir
geðsjúkra á Akureyri |
2,0 |
2,0 |
Eftirlits með
styrkjum og samningum á vegum HBR. |
35,3 |
0,0 |
Aðgerðaáætlun
fyrir börn og ungmenni með athyglisbrest og ofvirkni. |
33,0 |
26,7 |
Missoc
þátttökugjalds |
2,0 |
2,2 |
Þátttaka í
alþjóðlegu starfi |
2,0 |
2,2 |
Samkomulag við
Blindrafélagið um blindrahunda. |
2,0 |
2,6 |
Óskipt |
2,4 |
2,4 |
Samtals |
81,2 |
40,5 |
Fjárlagaliðir með
óskiptri fjárheimild
Eftirfarandi er yfirlit
yfir fjárlagaliði með óskiptri fjárheimildum ráðuneytisins sem ætlaðir eru til
að millifæra fjárheimildir af á aðra fjárlagaliði innan fjárlagaársins í
samræmi við forsendur og tilgang fjárveitinganna. Nánari umfjöllun um safnlið er að
finna í kafla 3.7 að framan.
Viðfang |
Heiti |
Ráðstöfun |
08-199-1.10 |
Til ráðstöfunar skv. ákvörðun ráðherra |
Ýmsar úthlutanir, s.s. til samtaka og einkaaðila
en einnig til ríkisaðila. |
08-379-1.01 |
Óskipt framlag til reksturs sjúkrahúsa |
Sameiginleg verkefni og ófyrirséð útgjöld
sjúkrahúsa. |
08-379-6.50 |
Stofnkostnaður |
Stofnkostnaður sjúkrahúsa. |
08-500-1.10 |
Heilsugæslustöðvar, almennt |
Sameiginleg verkefni og ófyrirséð útgjöld
heilsugæslustöðva. |
08-500-6.01 |
Heilsugæslustöðvar. Tæki og búnaður. |
Tækjakaup fyrir heilsugæslustöðvar. |
08-700-1.01 |
Heilbrigðisstofnanir. Almennur rekstur. |
Sameiginleg verkefni og ófyrirséð útgjöld
heilbrigðisstofnana. |
08-700-6.01 |
Heilbrigðisstofnanir. Tæki og búnaður. |
Tækjakaup fyrir heilbrigðisstofnanir. |
|