Fjárlagavefurinn
 
Umsókn um aðgang fyrir ríkisaðila
Aðeins fyrir stjórnendur hjá ríkinu sem vinna að fjárlagatillögum

Umsóknir um aðgang að tillöguhluta Fjárlagavefsins eru ekki teknar til afgreiðslu á þessum árstíma.

Umsóknir um aðgang eru yfirleitt aðeins afgreiddar í byrjun árs, eða á tímabilinu frá því ráðuneyti senda stofnunum upplýsingar um fjárlagagerðina sem fer í hönd og fram að þeim tíma að tillögum á að hafa verði skilað, sem er vanalega í fyrri hluta febrúar. Eftir það hafa stofnanir minni not fyrir að fá úthlutað nýjum skráningaraðgangi fyrr en komið er að fjárlagagerð næsta árs.

Þá er vakin athygli á því að á því tímabili þegar afgreiðsla umsókna stendur yfir er aðgangi ekki úthlutað daglega, heldur er umsóknum safnað saman í eina eða fleiri vikur. Umsóknirnar eru síðan afgreiddar margar í einu til að draga úr umstangi sem fylgir uppsetningum í aðgangskerfi vefsins. Vinsamlegast athugið að aðeins er  úthlutað einum aðgangi fyrir hverja ríkisstofnun, vanalega til forstöðumanns eða fjármálastjóra.